Haaa blogga……

Hmmm ég bloggaði seinast í byrjun okt og núna er bara okt búinn – eða svona næstum því! Jermundur hvað tíminn er að flýta sér….

Allir vita hvað þýðir að nýr mánuður sé að koma = nýtt æfingaprógram, þótt eg alveg elska þetta sem eg er með núna, svo gaman. Er farin að taka róður eftir næstum því allar æfingar, fékk þau fyrir mæli og auðvitað hlíður maður hehe :)

Er svona að reyna að halda mataræðinu alveg clean, gengur vel svona oftast, enn maður hefur tekið dag og dag sem maður er alveg ó men……..enn þá er að sparka sér aftur á beinu brautina og maður finnur hvað manni líður miklu betur.

Núna styttist í mótin í nóv, og mín ætlar að mæta auðvitað og sjá kroppana og fá þetta beint í æð, úff hvað það verður spennnó……

jæja ég ætla að hoppa í spinning – eg lofa að þyngja ekki Katrín hohoho  :)

Adios :)

Sunnudagur og get ekki beðið eftir nýrri æfingaviku!

Komin ár og dagar síðan ég bloggaði seinast enn þetta er helst að gerast :

Eg var að fá nýtt æfingaplan og vá aumingja rassinn minn eftir þennan mánuð hehe, ruddalegt planið. Get ekki beðið eftir að fara að æfa hoho, var að elda mér hádegismat og kvöld mat fyrir næstu viku, þetta er alveg magnað hvað maður finnur það á sér þegar maður borðar holt. Minn matur byggist mikið eða eiginlega bara upp á kjúlla þar sem eg er ekki mikil fiski kona, enn ég ætla að taka mig á því og fara að borða fisk oftar, svo eg borði ekki alllltaf bara kjúlla :)

Nammidagurinn í gær var vel þeginn og það var roooosa gott að fá ser smá nammi nommnomm, er strax farin að kvíða fyrir þegar ég fer í köttið að hafa engann nammidag úff það á eftir að taka á hehe enn eg er alla daga að undirbúa mig undir þetta í hausnum þannig að ég held að ég massa þetta alveg ;)

jæja ætla að fara að stúdera nýja planið alveg í drasl  núna

Adios!

September hálfnaður

Ég hef ekki verið dugleg að blogga undanfarið, ég er búin að vera veik og meira veik og ennþá meira veik, alveg óþolandi…..

Enn núna eru veikindadagarnir fyrir þetta ár búnir ;) og áfram með æfingarnar og holt mataræði, eg  get nú alveg viðurkennt það að prótín og skyr var ekki efst á óskalistanum í veikindunum, enn maður reyndi :)

Mér finst lika mánuðurinn alltaf nýbyrjaður þegar hann er að verða búinn, komin 20 sept og það er alveg að koma okt, jólin eru bara handan við hornið.

Ég fór í nokkra  tíma hjá www.likamslogun.is og prófaði ryksuguna hjá þeim og ég er að segja ykkur þetta er að VIRKA! snildar tæki og að sjá mun strax er geggjað!

Ég tók sjúklega morgun brennslu í morgun og fer svo í dag að lyfta, svoldið  fyndið týpan ég sem vildi bara alltaf vera að brenna og brenna , er farin að elska lyftingar og vill bara helst lyfta alltaf  :) já maður breytist  sem er bara gott !  :)

OUT!

Góðan daginn – dagurinn 1 sept!

Já í dag 1 sept er Góðan daginn – dagurinn hehe spes fyrirbæri ! Og það er komin september sem þýðir BARA 7 mánuðir í keppnina! Ágúst mánuður bara hvarf út um buskann og ég held að eg hafi hreinlega misst af nokkrum dögum í ágúst, tímanum líður svo hrikalega hratt, stundum dáldið böggandi enn gott líka :)

Ég á von á nýju sjóðandi heitu æfingarplani í dag og ég get ekki beðið eftir að sjá það og byrja að æfa eftir því, það er svo mikið snild að fá nýtt æfingaprógram í hverjum mánuði og hún Katrín Eva sér sko um það :) Alger snillingur!

Vil líka benda á að Hafrafitness kökurnar td frá Hagkaup eru bara nammi hehe *blikkblikk* Katrín Eva haha segjum ekkert meira um það! 

Ég er komin í áskrift hja www.bodyfit.is og fæ mat frá þeim 2 daga í viku, algert brill sko…Þá þarf maður ekkert að elda bara sækja matinn tilbúinn og eina sem þú þarft að gera er að borða og njóta! nommnomm….

Mataræðið er svo mikil vægt í þessu ferli þegar maður er að æfa, það er ekki nóg að æfa eins og brjálæðingur og borða svo bara súkkulaði inn á milli já eða hafrafitnesskökurnar  híhí :P

Eg er farin að búa mér til heima á kvöldin millimál fyrir daginn eftir, td eggjahvítur + haframjöl vigta þetta allt svo eg fái ekki of mikið eða of lítið ;) Heimilisfólkinu mínu  finst ég vera skrítin að gera þetta haha enn mér finst þetta gott  :)

Dætur mínar gáfu mér ný æfingaföt, buxur og bol frá Better Bodies og vááá sjúklega flott  föt!!!! Mæli með að allir kíkji og skoði þessi æfingaföt  :)

Jæja ég fékk smá munnræpu í þessu bloggi -  er það ekki alveg leyfilegt…..jú held það :)

 

 

Mánudagur….

Hæ, vá komin mánudagur, alveg þoli ekki hvað helgarnar eru fljótar að líða…..Ekkert nýtt svo sem að frétta, það er bara sofa, æfing, vinna, æfing, sofa og já svona inn á milli hugsa um heimilismeðlimina hehe ;)

Tók mér hvíldardag samt á laugardag, þar sem ég fór að horfa á uppáhalds keppa í MX Boldöldu seinasta keppnin á árinu. Var þar að mekkast allan daginn og var alveg rosalega brún eftir daginn eða ég helt það þangað til ég fór í sturtu þá var þetta bara rykdrulla haha ;)

Á sunnudeginum var það Esjuganga, og litla skottan mín (6 ára) fanst það ekkert mál ;) Alger súper stelpa þar á ferð. Eldri stelpan (10 ára) var nú ekki alveg að nenna þessu fyrst enn svo var hún á undan okkur öllum niður hehe

Í dag mætti ég á æfingu og tók þríhöfða og brjós + smá brennslu, og mikið var nú haustlegt að standa fyrir utan Hreyfingu kl 05:50 rigning og bara drungalegt úti og kalt!!! brrrrrrrrr

Svo eru bara 5 dagar eftir að æfingaplaninu mínu sem mér finst ég vera ný búin að fá frá Katrín Evu, enn svona er nú tíminn bara fljótur að líða. 8 apríl verður komin áður enn ég veit af íhhaa  :)

Njótið dagsins og verið góð við hvort annað :)

Til gamans híhí

Hér eru smá greinar um mig sem hafa komið á netinu :)

 

http://www.bleikt.is/Frettir/LesaMeira/ur120kiloumi67myndathatturolahardarogkarenaronnu

 

http://www.visir.is/lettist-um-53-kg-(hljomar-eins-og-lygasaga)/article/2011110529157

 

http://www.mbl.is/smartland/pistlar/heilbrigdurlifsstill/1177730/

:)

Mánudagur :)

Vá er kominn mánudagur, var ekki bara föstudagur í gær ??? Þessar helgar líða allt of hratt, enn það er líka svo gaman því hefst ný æfingavika.

Það var tekið vel á því í ræktinni á laugardaginn, var mætt á hurðarhúninn kl 07:50 fyrir utan Hreyfingu og beið þar þangað til skvísurnar þar opnuðu og þá var hlaupið inn og byrjað að púla :D Æfing dagsins var auka bak æfing og tvíhöfði og svo brennsla eftir lyftingarnar.

Svo magnað að eftir æfingar á laugardögum þá tými ég ekki að fá mer nammi hehe bíð frekar með það þangað til eftir kvöldmat, enn þá er heilagur ís- tími og svo eitthvað gotterí með.

Sunnudagurinn var næstu því í 100% leti, enn ég skrapp upp í Bolöldu þar sem var bikarkeppni í motokrossi og ég arkaði þar upp og niður brekkur og það tók sko á, mest langaði mig bara til að fara út í braut og hjóla, enn ég ákvað að horfa bara á :) Það gekk á ýmsu í keppninni, nokkur hjól biluðu aðrir misstu púst undan hjólinu sínu og svona skemmtileg heit :)

Klukkan mín hringdi svo kl 05:20 í morgun og eg alveg spratt fram úr og fekk mér smá að borða og svo út í bíl og brunað af stað til að bíða fyrir utan Hreyfingu hehe og í dag var tekin brjóst + þríhöfði + brennslu eftir á ;)

Ný æfinga vika að hefjast, vona að þið verðið öll svaka dugleg í vikunni því ég ætla að vera það hoho  :)

Já sæll….

Jæja þá er komin með blogg, hverjum hefði dottið það í hug :) Hér ætla ég að skrifa um hvernig mér gengur í mínu prógrammi og að vonandi þann 8 apríl standi ég á sviði rosa sátt með árangur minn.

Ég er búin að léttast rosalega mikið undan farin ár, var 120kg úff ég bara svitna við að skrifa þessa þriggja stafa tölu….enn með þrjósku þá er ég komin niður í 67kg og er stolt af því.  Enn þetta kostaði allt saman vinnu, eg vaknaði ekki bara einn morguninn og alveg hey í dag vil ég vera 67kg he he, aldeilis ekki sko…byrjaði heima á skíðavél og  fór ég alveg oft 2x á dag á hana, ekki þorði ég að fara í líkamsrætarstöð. Enda dáist ég af fólki sem ég sé á stöðvunum sem er vel yfir kjörþyngd að koma að púla! :)

Ég hef farið til nokkura þjálfara og gengið vel, í dag er hjá Katrín Evu og líkar það rosalega vel, fæ geggjuð æfingaprógröm í hverjum mánuði og pepp þegar ég þarf á því að halda og ráðleggingar við mataræði, ég man þegar eg fékk fyrsta matarprógrammið og ég hugsaði bara VÁ eg er að borða ALLANN daginn he he…

Svo fór ég í mælingu heim til Katrínar, og þá var það bara neglt niður FITNESS mót páskana 2012, ég hugsði bara hólí móli hvað er ég að koma mér út í, enn ég er með viljann og þrjóskuna og ætla mér að gera þetta! Ekkert mehe sko hjá mér ;)

Hlakka alveg svaðalega mikið til næstu 8 mánuði, því 8 mánuðir eru fljótir að líða og vonandi verð ég komin í það form sem ég vil þann 8 apríl 2012 :) væri dáldið töff sko ;)

Over and out í bili…..

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.